Ástrós Elísdóttir – curriculum vitae
MENNTUN
Menntun framhaldsskólakennara, viðbótardiplóma frá Háskóla Íslands júní 2021. Menntun til kennsluréttinda með áherslu á leiklistarkennslu. Öðlaðist kennsluréttindi á öllum skólastigum.
MA gráða í ritlist frá Háskóla Íslands október 2019. Lokaverkefni bæði þýðing á söngleik og ritun sagnasveigs með fjórum jólasögum.
Leiðsögumannspróf frá Leiðsöguskóla Íslands, í maí 2010. Leiðsögumannsréttindi á ítölsku og ensku.

BA gráða (laurea triennale), í leikhúsfræðum frá Listadeild Háskólans í Bologna, Ítalíu þann 27. mars 2006. Einkunn: 100 af 110 mögulegum. Námið, sem var að mestu leyti bóklegt, var mjög fjölbreytt og lögð var áhersla á sögu lista og menningar og leitast við að veita almenna breiða þekkingu á undirstöðu leikhússlífs okkar tíma. Meðal námsgreina voru leikhússaga, nútímaleikhússaga, undirstöðuatriði í leikstjórn, saga leikritunar, saga nútímalistar, kenningar og saga iðnhönnunar, kenningar og saga leikmynda, hagfræði og skipulag skemmtanaiðnaðarins, menningartengd mannfræði, almenn sálfræði, nútímasaga og verklegir tímar (smiðjur) svo eitthvað sé nefnt.
Stúdentspróf frá Menntaskólanum í Reykjavík, Nýmálabraut II, í maí 2002.
STARFSREYNSLA
Textavinna og einkatímar í ítölsku – sjálfstæður rekstur. Frá hausti 2024. Starfa á eigin vegum undir merkjum fyrirtækisins sem við maðurinn minn stofnuðum 2020 og fékk nafnið Mosató. Tek að mér ýmiss konar aðstoð við textagerð, ritstjórn, prófarkalestur og þýðingar. Þar að auki býð ég upp á einkatíma í ítölsku, bæði í eigin persónu (í Monopoli á Ítalíu) og í gegnum fjarfundaforrit á netinu.
Verkefnisstjórn og atvinnuráðgjöf. Ágúst 2021 – ágúst 2023. Starfaði sem verkefnisstjóri Sóknaráætlunar Norðurlands vestra og atvinnuráðgjafi hjá SSNV, Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Á meðal stærstu verkefna var umsjón Uppbyggingarsjóðs, umsóknarferlisins, samningagerðar og eftirfylgni, en Uppbyggingarsjóður styður við uppbyggingu áhersluverkefna sóknaráætlunar landshlutans með því að veita árlega styrki til atvinnuþróunar og nýsköpunar, stofn- og rekstrarstyrki á menningarsviði og verkefnastyrki á sviði menningar.
Verkefnastjórn. Október 2020 til loka maí 2022. Vann að framkvæmd Skúnaskralls, barnamenningarhátíðar á Norðurlandi vestra, ásamt tveimur öðrum verkefnastjórum.
Umsjónarkennsla á unglingastigi. Veturinn 2019-2020. Kenndi nemendum í 8.-10. bekk Höfðaskóla á Skagaströnd íslensku, ensku og dönsku auk samþættingar við fleiri námsgreinar, fór með umsjón helmings nemenda á unglingastigi á móti öðrum umsjónarkennara. Kenndi einnig nemendum í 1.-7. bekk fagið Listir og tjáningu.
Tungumála- og listgreinakennsla. Veturinn 2018-2019. Kenndi nemendum í 5.-10. bekk Höfðaskóla á Skagaströnd ensku og dönsku auk þess að kenna nemendum í 1.-7. bekk fagið Listir og tjáningu.
Listgreinakennsla. Veturinn 2017-2018. Kenndi nemendum í 1.-10. bekk Höfðaskóla á Skagaströnd fagið Listir og tjáningu.
Leiklistarkennsla – stundakennsla. Vorannirnar 2016, 2017, 2018, 2019, 2020 og 2021 kenndi ég leiklistarnámskeið við unglingadeild Höfðaskóla á Skagaströnd. Í framhaldi af námskeiðunum leikstýrði ég nemendum við uppsetningu söngleikja (2016 og 2017), gamanleiks (2018) og morðgátu (2021), sem ég endurvann handritin að og þýddi úr ensku (2017, 2018 og 2021). Einnig þjálfaði ég nemendur í söng og dansi þegar það átti við. Árið 2019 settum við upp leikrit í samstarfi við Þjóðleik og árið 2020 var undirbúningur langt kominn á söngleiknum Bugsy Malone þegar þurfti að aflýsa uppsetningunni vegna heimsfaraldursins. Árið 2021 var morðgátan Klippt og skorið fullæfð þegar ljóst var að vegna reglugerðar í heimsfaraldri yrði ekki hægt að sýna hana áhorfendum. Leiksýningin var því tekin upp á auglýstum frumsýningardegi og boðin til kaups rafrænt. Vorið 2021 kenndi ég einnig leiklistarnámskeið nemendum á miðstigi (5.-7. bekk) Höfðaskóla.
Bókaútgáfa og rekstur. Frá nóvember 2020. Stofnaði fyrirtækið Mosató ásamt manninum mínum. Fyrsta verkefni fyrirtækisins var útgáfa barnabókar fyrir jólin 2020. Ég skrifaði bókina, setti hana upp og sá um útgáfu- og markaðsmál. Tommaso Milella teiknaði myndir í bókina.
Kórstjórn. 2018-2022. Ég stofnaði Barnakór Skagastrandar og stýrði honum. Kórmeðlimir voru frá 6 til 15 ára og sungu m.a. á reglulegum jólatónleikum og vortónleikum. Að auki stýrði ég smærri sönghópum unglingsstúlkna sem höfðu áhuga á að æfa raddaðan söng og koma fram.
Fræðslufulltrúi Borgarleikhússins. Október 2011 til loka maí 2015. Ég stýrði fræðsludeild leikhússins frá stofnun hennar snemma árs 2013, en aðalmarkmið hennar var að opna leikhúsið enn frekar fyrir áhorfendum, ungum sem öldnum. Starfið fól m.a. í sér yfirumsjón með heimsóknum, starfskynningum og hvers kyns móttökum í leikhúsinu, framleiðslu fræðsluefnis og fræðslumyndbanda og skipulagningu stærri heimsóknarboða, en á hverju ári var öllum 5, 10 og 15 ára börnum í Reykjavík boðið í leikhúsið. Að auki tók ég virkan þátt í verkefnavali leikhússins, las ógrynni leikverka og sat fundi sem að verkefnavali lutu. Fyrstu árin var ég markaðsdeild einnig innan handar við textagerð, tók að mér sýningarstjórn og vann að bættu erlendu samstarfi svo eitthvað sé nefnt.
Þýðandi. Haustið 2011. Þýðingar úr ítölsku á íslensku fyrir þýska þýðingafyrirtækið SprechenMax.
Leiðsögumaður. Nokkrar ferðir sumurin 2010 – 2015 og svo sumarið 2024 með ítalska ferðamenn um landið.
Prófarkalestur – ritstjórn. Tók að mér vinnu fyrir viðburðafyrirtækið AMevents við útgáfu blaðs í tengslum við Söngkeppni framhaldsskólanna árin 2010 og 2011. Fyrra árið prófarkalas ég blaðið en hið síðara ritstýrði ég því, skrifaði greinar, tók viðtöl við keppendur o.þ.h. Blöðin voru yfir 60 bls.
Leiðbeinandi. Vorönn 2010. Tók að mér kennslu nokkra laugardaga ásamt ítölskum kennara í skóla Ítalska félagsins á Íslandi. Þar leiðbeindum við ítalsk-íslenskum börnum við ýmislegt sem tengist menningararfleifð Ítala, matreiðslu, söng, dans og tungumálaverkefni. Kennslan fór alfarið fram á ítölsku.
Verkefnastjóri með tónlist á leikskólanum Sæborg. Ágúst 2007 – desember 2009. Sá um tíma í tónlist, leiklist og hreyfingu fyrir öll börn leikskólans (rúmlega 80 börn á aldrinum 18 mánaða til 6 ára). Hafði einnig yfirumsjón með nýrri heimasíðu leikskólans, færði inn á hana fréttir og upplýsingar og kenndi öðru starfsfólki á notkun kerfisins. Leikskólinn starfar í anda Reggio Emilia.
Ritstjóri. Október 2006 – júlí 2007. Ritstjóri vefjarins http://www.leikhus.is. Starfið fól m.a. í sér samningu og útsendingu fréttabréfs til um 10.000 vildarvina vefjarins á 7 – 10 daga fresti. Einnig uppfærslu dagskrár allra atvinnuleikhúsa, uppsetningu frétta og leikhúsleikja á vefnum í boði annarra fyrirtækja og samskipti við forsvarsmenn þeirra eftir að samningagerð lauk. Auk þess skrifaði ég leikhúsgagnrýni og birti á vefnum.
Starfsnám. Febrúar – apríl 2007. Aðstoðarmaður leikstjóra og tónlistarstjóra í Íslensku Óperunni við uppsetningu á óperunum Suor Angelica og Gianni Schicchi eftir Puccini sem Óperustúdíó Íslensku Óperunnar setti upp.
Starfsnám. 3 mánuðir í upphafi árs 2005. Teatro Rossini leikhúsið í Puglia héraði á Ítalíu. Ýmis störf sem til féllu við rekstur ofangreinds leikhúss. Sérstök áhersla var lögð á barnasýningar og skipulagði ég heimsóknir frá nálægum skólum og fræddi nemendur um eðli leikhússins og þær sýningar sem verið var að sýna hverju sinni.
Leikkona/kynningarmál. Sumar/haust 2002. Uppsetning á verkinu Fullkomið brúðkaup eftir Robin Hawdon, sem var samstarfsverkefni nemenda úr fimm framhaldsskólum. Hópurinn stofnaði Leikfélagið Þránd sem fékk styrk frá Reykjavíkurborg til æfinga það sumar og var sýningin sett upp í september í Loftkastalanum undir stjórn leikstjórans Magnúsar Geirs Þórðarsonar. Tók að mér ýmis störf við kynningarmál og skipulagningu auk þess að leika eitt af aðalhlutverkunum (brúðina Rakel).
Ýmis störf meðfram námi, m.a. afgreiðslustörf í fataverslunum og raftækjaverslun, vinna í mötuneytum, við framreiðslu og við aðhlynningu aldraðra auk kynninga á nýjum vörum í stórmörkuðum. Tók þess utan einnig þátt í uppsetningum leikfélags Menntaskólans í Reykjavík, Á Herranótt.
Hef á síðari árum kennt einkatíma í ítölsku og leikið af og til örhlutverk í gamanþáttum fyrir sjónvarp (T.d. Þær tvær og Venjulegt fólk).
ÖNNUR REYNSLA OG NÁMSKEIÐ
Tungumál. Ég var á málabraut í menntaskóla og hef lært nokkur tungumál vel. Ég tala og rita bæði ensku og ítölsku eins og innfædd, dönsku vel og frönsku sæmilega. Ég get skilið og talað norsku, spænsku og þýsku og lærði latínu á sínum tíma, þó hafi fennt nokkuð yfir hana.
Tölvukunnátta. Ég er af kynslóðinni sem þurfti að læra sjálf á netið þegar það kom og allar tækninýjungar í framhaldinu svo ég á nokkuð auðvelt með að setja mig inn í slíkt. Hef útbúið ófáar heimasíður í WordPress og einhverjar í Squarespace, notast talsvert við Word og Excel og þekki til Photoshop og Procreate.
Tónlist – söngur. Lauk miðstigi (5. stigi) í klassískum söng, tónfræði og tónheyrn við Söngskólann Domus Vox og hef lært hjá nokkrum kennurum, m.a. Ingu Backman, Margréti Jóhönnu Pálmadóttur, Maríusi Sverrissyni og Sigríði Ellu Magnúsdóttur. Hef tekið þátt í óperuuppsetningum. Lærði einnig jazzsöng við FÍH hjá Tenu Palmer frá 1998-2000, hluti af náminu voru hópsöngtímar, tónfræði og þátttaka í rokkbandi. Hef sungið í kórum meira og minna frá átta ára aldri og tekið þátt í ótal söngbúðum og tónleikum, innanlands sem utan. Söng lengst af með kvennakórnum Vox feminae undir stjórn Margrétar Pálmadóttur. Syng stundum opinberlega ýmist með hljómsveitum, bakraddir eða ein ásamt píanóleikara, yfirleitt djass.
Kennslunámskeið. Ég sótti ýmis námskeið og fyrirlestra í tengslum við kennslu á árum mínum í Höfðaskóla og fór tvívegis með í námsferðir til Bretlands þar sem ég sótti m.a. The Education Show og The Bett Show.
Improv Ísland – námskeið. Sat ýmis námskeið í langspuna (long-form-improv) frá 2015 til 2018, m.a. Haraldinn 1 hjá Dóru Jóhannsdóttur og nokkur söngleikjanámskeið.
Lífleysa – höfundur verks. Febrúar 2015. Námskeiðið „Leikarinn sem höfundur“ var sameiginlegt námskeið fyrir ritlistarnema í HÍ og leikaranema í LHÍ. Leikaraefnið Kristín Pétursdóttir átti að frumsýna einstaklingsverk og ég fékk það verkefni að semja leikritið í samstarfi við leikarana (Kristínu og Hjalta Rúnar Jónsson). Verkið var sýnt 19. og 20. febrúar 2015. 2015.
Jólabók Blekfjelagsins – höfundur örsögu. 2013. Nemendur í ritlist við Háskóla Íslands gáfu út bók fyrir jólin 2013 með 100 orða jólasögum. Sögurnar voru 31 – ein fyrir hvern dag desembermánaðar – og voru lesnar upp á Rás 1.
Leikhús listamanna – meðlimur. Var þátttakandi í Leikhúsi listamanna frá 2010 til 2014. Hópurinn sýndi gjörninga reglulega á listrænum kvöldum í Þjóðleikhúskjallaranum, Gamla bíói og Iðnó.
Námskeið á vegum fræðsludeildar Þjóðleikhússins. 2006. Sótti námskeið þar sem farið var ofan í saumana á eftirfarandi verkum sem þá voru til sýningar í Þjóðleikhúsinu: Pétur Gautur, Eldhús eftir máli og Bakkynjur.
Beðið eftir Godot. Haust 2003. Háskólinn í Bologna. Leiklistarnámskeið hjá Casini Ropa þar sem rýnt var í verkið og gerðar með það tilraunir í margvíslegum æfingum og umræðum sem lauk með stuttri sýningu í lok námskeiðsins.
Invasion of the Body Snatchers. Vetur 2002 – 2003. Háskólinn í Bologna. Leikstjórnarnámskeið hjá Giuseppe Liotta byggt á bíómyndinni/bókinni. Fjölbreyttar óhefðbundnar æfingar með efnið leiddu til uppfærslu sem vakti verulega athygli og í stað einnar hefðbundinnar sýningar í lok námskeiðsins voru haldnar fleiri sýningar í Bologna og eins styrkti háskólinn hópinn til leikferðar til bæjarins Monza í nágrenni Milano þar sem sýningin var endurtekin.
Milljónamærin snýr aftur – leikkona. Vor 2002. Uppsetning á verki Friedrichs Dürrenmatt (Der Besuch der alten Dame) á vegum Herranætur Menntaskólans í Reykjavík undir leikstjórn Magnúsar Geirs Þórðarsonar. Hlutverk: Frú Ill.
Platonov – leikkona. Vor 2001. Uppsetning á verki Antons Ĉechov á vegum Herranætur Menntaskólans í Reykjavík undir leikstjórn Ólafs Darra Ólafssonar. Hlutverk: Dansari.
Söngleikjanámskeið. Vor 2001. Tónlistarskóli Domus Vox, Reykjavík. Á námskeiðinu var kenndur söngur, dans og leiklist og lauk því með nemendasýningu byggðri á söngleiknum Þreki og tárum.
Leiklistarnámskeið. Þátttaka í ýmsum leiklistarnámskeiðum frá 1990 til 2002, t.d. þau námskeið sem staðið var fyrir í Menntaskólanum í Reykjavík á árunum 1998-2002 o.m.fl.
Dansnám. Lagði stund á dans sem barn og lauk fjórða stigi í klassískum ballett frá Ballettskóla Sigríðar Ármann. Stundaði einnig jazzballett og samkvæmisdansa.
Rokklingarnir – barnastjarna. 1989-1992. Söng einsöng með Rokklingunum á öllum starfstíma þeirra. Hljómsveitin hélt tónleika, kom fram í Hemma Gunn, tók upp tónlistarmyndbönd og hlaut tvær platínuplötur.