Ítölskukennsla

Hefur þig alltaf langað til að kunna ítölsku? Ertu algjör byrjandi eða hefurðu kannski farið á námskeið eða æft þig á Duolingo og skilur “un poco” – en þegar þú reynir að tjá þig byrjarðu að stama og gleymir orðunum? Þá gæti þessi aðferð hentað þér.

Ástrós býður upp á einkatíma í ítölsku í gegnum netið (en einnig í eigin persónu í Puglia-héraði á Ítalíu). Á vikulegum hittingum á Teams er áhersla lögð á að æfa færni í að skilja og tala ítölsku. Tímarnir henta bæði byrjendum og þeim sem lengra eru komnir – hafa t.d. lært grunnatriðin en vantar æfingu í að tala.

Ítölskukennslan er einstaklingsmiðuð og farið á þeim hraða sem hentar hverjum og einum. Sé áhugi fyrir því eru sett fyrir heimaverkefni sem farið er yfir í sameiningu í næsta tíma.

Settu þig í samband við Ástrós til að ræða verð, sem fer eftir fjölda bókaðra tíma, eða til að fá frekari upplýsingar um tímana.

Margir möguleikar eru í boði til að sérsníða tímana að þínum þörfum, svo láttu endilega vita hverju þú leitast eftir.

astros@mosato.is

+39 348 191 2233

Ástrós bjó áður um árabil á Ítalíu og stundaði þar háskólanám á ítölsku. Hún er nú búsett tímabundið með fjölskyldunni í Monopoli, í Puglia-héraði. Hún hefur kennsluréttindi og hefur tekið að sér ítölskukennslu af og til í gegnum tíðina, þýtt úr ítölsku, er með leiðsögumannspróf á ítölsku og hefur ferðast með ítalska hópa um Ísland.