Leiklist og tjáning

Leiklistarnámskeið

Námskeið fyrir fullorðna og eldri unglinga. Áhersla er lögð á undirstöðuatriði í leiklist, spuna, leiki og framsögn.

Möguleiki á að semja um styttri námskeið (eina helgi) eða lengri (allt að átta vikur).

Leiklist í grunnskólum

Námskeið fyrir grunnskólanemendur, farið yfir undirstöðuatriði í leiklist, unnið með spunatækni, alls kyns upphitun, leiklistarleiki, framsögn og tjáningu eftir getustigi. Lengd námskeiðs og möguleiki á uppsetningu við lok þess er samningsatriði.

Listir og tjáning fyrir yngri bekki grunnskóla

Námskeið fyrir yngri börn þar sem m.a. er unnið með hæfniviðmið fyrir sviðslistir skv. Aðalnámskrá og áhersla lögð á að kynna fyrir börnunum ýmsar leiðir til tjáningar og sköpunar, og með það að markmiði leitað í brunn sem flestra lista.