Námskeið
Leiklist og tjáning
Hjá Mosató býður Ástrós upp á námskeið þar sem unnið er á fjölbreyttan hátt með tjáningu. Hún hefur kennt leiklist frá árinu 2015, sett upp ýmsar leiksýningar með unglingum og haldið námskeið. Árið 2021 lauk hún námi til kennsluréttinda með áherslu á leiklistarkennslu.
Smellið hér til að sjá hvað er í boði.
Ítölskukennsla
Ástrós bjó um árabil á Ítalíu og stundaði þar háskólanám á ítölsku. Hún hefur tekið að sér ítölskukennslu af og til, þýtt úr ítölsku, er með leiðsögumannspróf á ítölsku og ferðast með ítalska hópa um Ísland. Hún hefur kennsluréttindi og býður nú upp á ítölskukennslu.
